Stundum þarf að lýsa einungis eina tönn. Algengt dæmi er framtennur sem hafa lent í áverka. Ef lífandi vefur í þeim tönnum deyr þarf að rótfylla tönnina. Í þessum tilfellum verður litarbreyting inni í tönninni - og lýsa þarf hana innan frá.
Í slíkum tilfellum getur innri bleiking verið góður kostur. Bleikingarefni er þá komið fyrir inni í tönninni og meðferðin endurtekin nokkrum sinnum eftir þörfum. Eftir innri bleikinguna er tönnin lokuð aftur með plastefni.
Tennurnar geta orðið viðkvæmar tímabundið á meðan á tannhvíttun stendur. Viðkvæmnin gengur yfirleitt fljótt til baka.
Árangur tannhvíttunar er einstaklingsbundinn. Upphaflegur tannlitur og ástand tannanna hafa áhrif á niðurstöðuna.
Tannlitur dökknar smám saman með tímanum. Við mælum með að endurtaka tannhvíttun á árs fresti til að viðhalda árangrinum.
Við mælum með að minnka neyslu á kaffi, tei, rauðvíni og öðrum matvælum sem innihalda sterk litarefni fyrstu dagana eftir meðferð.