Invisalign
Tannréttingar með glærum skinnum er fljótleg og þægileg leið til þess að laga tannskekkjur. Við bjóðum upp á tannréttingar með Ordoline. Kerfið hentar mjög vel til að bæta útlit tanna og laga skekkjur, þrengsli og krossbit framtanna. Skinnurnar eru nær ósýnilegar eins og nafnið gefur til kynna.
Kerfið hefur hins vegar ákveðnar takmarkanir og hentar ekki vel til þess að laga ákveðnar bitskekkjur.

Tannréttingar með glærum skinnum hafa marga kosti. Skinnur eru þægilegri, fara betur með tennur, eru nær því ósýnilegar og hægt er að taka þær úr sér.
Hönnun meðferðar er gerð starfrænt.

Meðferðartími og verð fara eftir því hversu mikil tannskekkjan er.
Eðlilegt verð á Ordoline tannréttingu er á bilinu 650.000,- til 800.000,-
Eftir tannréttingarferlið festum við stoðvíra aftan á framtennur og útfærum stoðskinnur. Það er gert til að koma í veg að tennurnar skekkist aftur.

