Burstaðu tennurnar og notaðu tannþráð áður en þú setur hvíttunarskinnurnar í munninn.
Gakktu úr skugga um að skinnurnar séu hreinar og þurrar áður en þú setur gelið í þær.
Settu lítið magn af Opalescence-geli í skinnurnar, á framflöt tannanna. Yfirleitt er ekki þörf á að hvítta jaxla heldur fyrst og fremst framtennur og forjaxla.
¼–⅓ sprautunnar í hvora skinnu er yfirleitt nægilegt.
Ekki nota of mikið af gelinu. Það getur lekið á tannholdið og valdið ertingu.
Settu svo skinnurnar á tennurnar. Gelið ætti að dreifast yfir framhlið tannanna. Ef gel lekur út fyrir skinnurnar á tannholdið skaltu skola það strax.
Notkunartíminn fer eftir styrkleika gelsins. Opalescence gel með styrk allt að 16% á að nota í 2-5 klukkustundir á dag.
Við mælum ekki með að sofa með skinnurnar.
Byrjaðu að nota skinnurnar í 5–7 daga í röð. Ef þér finnst árangurinn ekki nægilega góður, taktu 7 daga hlé og haltu áfram í nokkra daga í viðbót.
Með tímanum geta tennurnar tekið aftur í sig lit. Yfirleitt þarf að fríska upp á niðurstöðuna 1-2 sinnum á ári. Þá þarf yfirleitt að hvítta í 2-3 daga. Hægt er að kaupa meira hvíttunargel hjá okkur.
Fjarlægðu skinnurnar og skolaðu munninn með volgu vatni .
Skolaðu skinnurnar með köldu vatni og geymdu þær hreinar og þurrar í hulstrinu. Ekki nota heitt vatn því það getur afmyndað plastið.
Geymdu tannhvíttunargelið í ísskáp. Ekki frysta það.
Tímabundin viðkvæmni fyrir kulda eða hita er algeng eftir tannhvíttun.
Það er mjög einstaklingsbundið hversu sterk viðkvæmnin verður. Sumir finna lítið eða ekkert á meðan að aðrir geta fundið fyrir talsverðum óþægindum.
Viðkvæmnin á að minnka eftir að hvíttun er stöðvuð eða gert er hlé á henni. Ef þú finnur mikið kul, taktu nokkra daga hlé áður en þú heldur áfram.
Hafðu samband við okkur ef viðkvæmnin er óvenjulega mikil eða viðvarandi.
Gelið getur valdið tímabundinni ertingu í tannholdi. Tannholdið verður ljóst á litinn og viðkvæmt. Skolaðu allt gel sem lekur út úr skinnum og á tannholdið strax.
Fyllingar, krónur og postulínsviðgerðir lýsast ekki. Þær geta því orðið meira áberandi við tannhvíttun.
Ofnæmisviðbrögð eru sjaldgæf en geta komið fram. Hættu notkun og hafðu samband við okkur ef þú finnur fyrir bólgu eða öðrum einkennum.
Ekki kyngja gelinu.
Ekki nota tannhvíttunargel á meðgöngu eða meðan á brjóstagjöf stendur.