Varanleg viðgerð tannarinnar
Rótarmeðferð er aðeins hluti af því að varðveita tönnina. Eftir rótarmeðferðina þarf að byggja tönnina upp.
Rótfylltar tennur hafa oft misst talsvert af eigin tannvef og geta því verið viðkvæmari fyrir sprungum og brotum. Á jöxlum og öðrum tönnum sem verða fyrir miklu álagi mælum við oft með krónu eða hlutakrónu (onlay) til að vernda tönnina til langs tíma.
Góð endanleg viðgerð getur komið í veg fyrir að bakteríur berist aftur inn í rótargangakerfið.