Af hverju þarf að gera við barnatennur?

Af hverju þarf að gera við barnatennur?

…Barnið mitt missir þær eftir nokkur ár hvort sem er.

Þessi staðreynd er vissulega rétt, barantennur eiga sér skamman líftíma og detta fyrir táningsaldur. Það er mikilvægt að átta sig á því að góð tannheilsa er lykilatriði fyrir eðlilegan vöxt og þroska barns.

Næring og vöxtur

Börn þurfa að nærast til að vaxa eðlilega. Til þess að tyggja fæðu þurfa börn tennur. Að tyggja með niðurbrotnum, slitnum og sýktum tönnum er erfitt og vont. Börn sem geta ekki tuggið matinn eðlilega sækja í kolvetnaríka fæðu, sem er oft einfaldari að mylja niður. Kolvetnaríkt mataræði bætir ekki munnheilsu, þar sem hátt sykurinnihald örvar myndun nýrra tannskemmda.

Sýkingar og tannmissir

Ómeðhöndlaðar tannskemmdir af völdum baktería stækka með tímanum. Stórar skemmdir geta valdið sýkingum í tannholdi og beini. Sýkingar í barnatönnum geta stundum valdið óafturkræfum skaða á fullorðinstönnum sem eru að myndast í kjálkabeini. Sýktum barnatönnum er ekki hægt að bjarga, og eru þær fjarlægðar.

Undir eðlilegum kringumstæðum koma fullorðinstennur upp skömmu eftir að barnatennur detta.

Ef barnatönn er farin áður en fullorðinstönn er tilbúin til að koma upp, færast barnatennurnar kringum gatið saman og reyna að loka því. Það verður lítið sem ekkert pláss fyrir fullorðinstönnina þegar hún er tilbúin að koma upp.

Ef margar barnatennur eru fjarlægðar of snemma, getur það haft verulega slæmar afleiðingar. Ekki verður nægilegt pláss fyrir fullorðinstennurnar og þær koma upp á röngum stöðum. Líkurnar á að barnið þurfi tannréttingar seinna meir verða mun hærri.

Skemmdir í fullorðinstönnum

Mjög mikilvægt er að gera sér grein fyrir því að skemmdir séu af völdum baktería.

Í munni barna sem þjást af tannskemmdum eru margfalt fleiri bakteríur en í heilbrigðum munni.

Um 6 ára aldur fara börn að missa barnatennur og fá fullorðinstennur. Bakteríur sem eru þegar til staðar í munni ráðast þá á fullorðinstennurnar og valda þar skemmdum sem eru óafturkræfar.

Mikilvægt er að venja barnið þitt á rétt mataræði og tannburstun snemma.

Spurningar? Vangaveltur? Hafðu samband við okkur á Facebook