Tannviðgerðir

Tennurnar okkar geta þurft viðhald vegna slits, brota og skemmda af völdum baktería. Með nútíma bindiefnum og tannviðgerðarefnum er oft hægt að endurbyggja það sem hefur tapast og varðveita um leið eins mikið af heilbrigðum tannvef og mögulegt er.

Við veljum aðferð eftir umfangi skemmdarinnar — allt frá einföldum fyllingum og yfir í sérhannaðar uppbyggingar þegar stærri hluti tannarinnar hefur tapast.

„Hvernig er best að gera við tönnina?“

Engin ein leið hentar öllum tönnum.
Tennurnar okkar gegna mikilvægu hlutverki alla ævi — þegar við borðum, tölum og brosum. Með tímanum geta tannskemmdir, slit og brot kallað á viðgerðir. Mikilvægt er að halda tönnunum heilbrigðum eins lengi og hægt er.

Við leggjum því áherslu á að varðveita heilbrigðan tannvef og vanda val á viðgerð. Hvert inngrip þarf að hafa skýran tilgang og taka mið af framtíð tannarinnar. Forðast þarf óþarfa inngrip sem gætu stytt líftíma tannarinnar.

Við metum umfang skemmdarinnar, hversu mikið er eftir af heilbrigðum tannvef og álagið sem tönnin þarf að þola. Út frá því veljum við með þér lausn sem hentar — með endingu, útlit og varðveislu tannvefs í huga.

Tannlitaðar fyllingar

Góð lausn fyrir minni skemmdir, brot og slitfleti.

Með tannlituðu fyllingarefni, einnig kallað plastblendi eða composite, er hægt að gera við tannskemmdir og slitfleti. Efnið er bundið við tannvefinn og mótað beint á tönnina.

Plastblendi hentar vel í margar minni og meðalstórar viðgerðir. Nútímaleg plastefni geta litið mjög náttúrulega út og eru þokkalega sterk. Með tímanum getur efnið þó slitnað og litast af mat og drykk. Stundum þarf því að pússa viðgerðina, lagfæra hana eða endurnýja.

Þegar stóran hluta tannarinnar vantar eða verja þarf veika tannveggi gegn broti geta hlutakrónur (onlay) eða krónur hentað betur. Það á meðal annars við um sumar rótfylltar tennur.

Fyrir
Eftir

Slit á tannhálsi augntannar var gert við með plastblendi.

Fyrir
Eftir

Sprungur í glerung og slit á bitköntum framtanna lagfærð með plastblendi.

Hlutakrónur

Þegar umfangsmeiri viðgerðar er þörf.

Þegar stóran hluta tannarinnar vantar getur hlutakróna (onlay) verið betri lausn. Hlutakróna er sérsmíðuð viðgerð sem byggir upp þann hluta tannkrónu sem vantar. Þær geta þakið og varið veika útveggi tannar og styrkt tennurnar.

Hlutakrónur eru hannaðar í CAD hönnunarforritum út frá þrívíddarskönnum. Þannig getum við aðlagað lögun þeirra og bit áður en þær eru framleiddar. Framleiðsluferlið er mjög nákvæmt.

Við hönnum og framleiðum hlutakrónur innanhúss og getum yfirleitt lokið meðferðinni samdægurs.

Fyrir
Eftir
Meðferðarferlið
01
Umfang viðgerðanna
Endurnýja þurfti eldri fyllingar vegna slits, niðurbrots og tannskemmda á samskeytum.
02
Stafræn hönnun
Viðgerðir eru hannaðar hjá okkur út frá þrívíddarskönnum af tönnunum.
03
Hlutakrónur tilbúnar
Hlutakrónur eru þrívíddarprentaðar og litaðar til að þær liti náttúrulega út.

Krónur

Þegar endurbyggja þarf tönnina alla.

Með tannlituðu fyllingarefni, einnig kallað plastblendi eða composite, er hægt að gera við tannskemmdir og slitfleti. Efnið er bundið við tannvefinn og mótað beint á tönnina.

Plastblendi hentar vel í margar minni og meðalstórar viðgerðir. Nútímaleg plastefni geta litið mjög náttúrulega út og eru þokkalega sterk. Með tímanum getur efnið þó slitnað og litast af mat og drykk. Stundum þarf því að pússa viðgerðina, lagfæra hana eða endurnýja.

Þegar stóran hluta tannarinnar vantar eða verja þarf veika tannveggi gegn broti geta hlutakrónur (onlay) eða krónur hentað betur. Það á meðal annars við um sumar rótfylltar tennur.

Fyrir
Fyrir

Króna smíðuð á framtönnina sem hefur tapað meirihluta tannvefs.

Fyrir
Fyrir

Nýjar krónur smíðaðar á 3 tennur. Ástæður: mikill litamunur og sýnileg samskeyti.

Meðferðaraðili
Roberts Timermanis
Tannfræðingur
Roberts sér um tannhvíttunarmeðferðir á stofunni. Hann hefur menntað sig aukalega í mismunandi aðferðum við tannhvíttun og leggur áherslu á að hver og einn sem fer í tannhvíttun hjá honum fái náttúrulega fallegt bros.
Meira um mig ›
Eftir meðferð

Við hverju má ég búast?

01

Verða tennurnar viðkvæmar?

Tennurnar geta orðið viðkvæmar tímabundið á meðan á tannhvíttun stendur. Viðkvæmnin gengur yfirleitt fljótt til baka.

02

Hversu hvítar verða tennurnar?

Árangur tannhvíttunar er einstaklingsbundinn. Upphaflegur tannlitur og ástand tannanna hafa áhrif á niðurstöðuna.

03

Hversu lengi endist árangurinn?

Tannlitur dökknar smám saman með tímanum. Við mælum með að endurtaka tannhvíttun á árs fresti til að viðhalda árangrinum.

04

Þarf ég að passa mataræði?

Við mælum með að minnka neyslu á kaffi, tei, rauðvíni og öðrum matvælum sem innihalda sterk litarefni fyrstu dagana eftir meðferð.

Langar þig í bjartara bros?
Í viðtalstíma förum við yfir möguleikana og veljum leiðina sem hentar þér best.
Óska eftir tíma
›
Leiðbeiningar
Ertu nú þegar með tannhvíttunarskinnur? Leiðbeiningar um notkun er að finna hér.
Leiðbeiningar
›