Tannúrdráttur
Leiðbeiningar eftir úrdrátt tannar
Spurningar eða áhyggjur?
Við erum hér ef þú þarft á okkur að halda.
Hringja
Messenger
Hverju má ég búast við?

Eftir tannúrdrátt er eðlilegt að finna fyrir eymslum, bólgu og smávægilegri blæðingu. Einkennin eru yfirleitt mest áberandi fyrstu dagana og fara síðan smám saman minnkandi. 

Það er mjög einstaklingsbundið hvernig við upplífum verki.

Sumir finna lítið sem ekkert fyrir og aðrir eru með mikla verki í 7–10 daga.

Svæðið getur verið viðkvæmt þegar þú borðar eða burstar tennurnar og það getur tekið vikur eða mánuði fyrir tannholdið að gróa að fullu. 

Fylgdu leiðbeiningunum sem þú fékkst frá okkur og leyfðu svæðinu að fá þann tíma sem það þarf til að gróa.  

Ef þú ert óviss um hvort það sem þú finnur fyrir sé eðlilegt er þér alltaf velkomið að hafa samband við okkur.

Verkir og verkjastilling

Það er mjög einstaklingsbundið hvernig við upplífum verki.

Hjá flestum eru verkir mestir fyrstu 1–2 dagana og fara svo smám saman minnkandi.

Við mælum með verkjastillingu með Paracetamol og Ibuprofen. Oft er gott að taka fyrsta skammtinn áður en deyfingin er alveg farin úr svæðinu.

Venjulegur skammtur fyrir fullorðinn er 500–1000mg af Paracetamol og 400–600mg af Ibufen. Hjá börnum og unglingum dugar yfirleitt Paracetamol eitt og sér. Skammturinn fer eftir aldur og vigt einstaklings.

Ráðfærðu þig við okkur ef þú mátt ekki taka Ibufen eða Paracetamol.

Hjá flestum er ekki þörf á sterkari verkjastillingu. Hafðu samband við okkur ef Paracetamol og Ibufen veita þér ekki nægilega góða verkjastillingu.

Ef verkirnir aukast verulega eftir 3–5 daga í stað þess að minnka smám saman getur það verið merki um svokallað dry socket. Því fylgir yfirleitt mjög vont bragð úr sárinu. Hafðu samband við okkur svo við getum metið svæðið og veitt viðeigandi meðferð.

Blæðing

Smávægileg blæðing eða blóðlitað munnvatn er eðlilegt fyrsta daginn.

Ef það byrjar að blæða skaltu setja grisjuna sem þú fékkst frá okkur beint yfir sárið og bíta þétt á hana í um 30 mínútur. Reyndu að vera róleg/ur og forðastu að taka grisjuna upp ítrekað til að athuga sárið.

Græðslan hefst í blóðstorkunni sem myndast í sárinu. Því er mikilvægt að trufla ekki blóðstorkuna fyrstu viku. Ekki drekka með röri, ekki sjúga blóð úr sárinu, og ekki skola munninn kröftuglega.

Ef veruleg blæðing heldur áfram þrátt fyrir góðan þrýsting skaltu hafa samband við okkur.

Bólga

Bólga er eðlileg eftir tannúrdrátt. Hún verður oft mest áberandi dagana 2–3 og fer síðan smám saman minnkandi. Örsjaldan myndast marblettur á andliti eftir nokkra daga.

Kæling getur hjálpað fyrsta sólarhringinn. Byrjaðu að kæla eftir að deyfing er farin að minnka. Settu kælipoka utan á kinnina í 3–5 mínutur í senn og hafðu klút á milli kælipokans og húðarinnar. Hvíldu svæðið í 15 mínutur. Endurtaktu þetta 3–5 sinnum.

Það getur einnig hjálpað að hafa höfuðið aðeins hærra þegar þú sefur fyrsta daginn.

Ef bólgan heldur áfram að aukast eftir nokkra daga, verður mjög mikil, henni fylgir hiti, almenn slappleiki, vaxandi verkir eða erfiðleikar við að kyngja eða anda skaltu hafa samband við okkur tafarlaust.

Munnskol og tannhirða

Forðastu að skola munninn kröftuglega fyrsta daginn. Blóðstorkan sem myndast í sárinu er mikilvæg fyrir eðlilegan gróanda og það má ekki losa hana.

Þú getur burstað aðrar tennur eins og venjulega en farðu varlega í kringum sárið.

Við mælum með notkun bakteríudrepandi munnskols sem inniheldur Klórhexídin. Skola á þrisvar á dag, í mínutu í senn, í 4–5 daga. Byrjaðu að skola morguninn eftir aðgerðina.

Ekki skola kröftuglega - heldur reyndu frekar að "baða" aðgerðarsvæðið með munnskoli. Skyrptu svo munnskolið eftir sirka mínutu.

Matur og drykkur

Bíddu þar til deyfingin er farin úr áður en þú fær þér að borða, svo þú bíti þig ekki óvart í kinn, vör eða tungu.

Veldu mjúkan og volgan mat fyrstu 2–3 daga og forðastu  heitan mat og drykki.

Ef þér liður vel mátt þú prófa mat sem þarf að tyggja eftir 2–3 daga. Reyndu að tyggja hinum megin í munninum og forðastu mat sem getur auðveldlega fest sig í sárinu (til dæmis fræ).

Drekktu vel af vatni. Forðastu að nota sogrör fyrstu dagana þar sem sogið getur truflað blóðstorkuna.

Þegar þér fer að liða betur getur þú smám saman farið aftur yfir í venjulegt mataræði.

Reykingar og áfengi

Við mælum eindregið með því að forðast reykingar og nikótínvörur eftir tannúrdrátt. Reykingar geta truflað gróanda. Hættan á fylgikvillum eykst verulega, sérstaklega á dry socket.

Best er að forðast reykingar í að minnsta kosti 3–4 daga og helst eins lengi og mögulegt er á meðan sárið er að gróa.

Forðastu áfengi fyrstu 3–4 daga.

Hreyfing og vinna

Hlustaðu á líkamann og gefðu þér tíma til að jafna þig.

Taktu því rólega fyrsta daginn. Ekki reyna á líkamann fyrstu 2–3 daga, þar sem aukinn blóðþrýstingur getur valdið því að blæðing hefjist aftur.

Flestir geta snúið aftur til vinnu eftir 1–3 daga. Eftir umfangsmeiri skurðaðgerðir getur tannlæknirinn þinn þó ráðlagt þér að taka lengri tíma í hvíld.

Hafðu samband við okkur ef þig vantar vottorð fyrir vinnuveitandann þinn.

Hvenær á ég að hafa samband?

Hafðu samband við okkur ef þú finnur fyrir einhverju af eftirfarandi:

  • Verulegri blæðingu sem stöðvast ekki þrátt fyrir góðan þrýsting.
  • Verkjunum sem aukast verulega eftir nokkra daga í stað þess að minnka.
  • Bólgu sem heldur áfram að aukast eftir fyrstu dagana.
  • Hita eða almennri vanlíðan.
  • Gröft, óþægilegu bragði eða vondri lykt frá sárinu.
  • Erfiðleikum við að opna munninn.
  • Erfiðleikum við að kyngja eða anda.
Ef þú færð mikla bólgu í andliti eða hálsi eða átt erfitt með að anda skaltu leita tafarlaust eftir bráðri læknisaðstoð.