Til þess að ná hámarks árangri er mikilvægt að neyta ekki kaffi, te, rauðvín og mat sem inniheldur mikið af litarefni, til dæmis bláber og túrmerik.
Við mælum með að reykja ekki fyrsta daginn.
Gott er að hafa í huga að niðurstöður tannhvíttnarmeðferðar eru einstaklingsbundnar.
Með tímanum geta tennurnar tekið aftur í sig lit. Yfirleitt er ráðlagt að fríska upp á niðurstöðuna á 1-2 ára fresti. Það er hægt að gera með tannhvíttunarskinnum eða með því að endurtaka tannhvíttun í stól.
Tímabundin viðkvæmni fyrir kulda eða hita er algeng eftir tannhvíttun.
Það er mjög einstaklingsbundið hversu mikil viðkvæmnin verður. Sumir finna lítið sem ekkert á meðan að aðrir geta fundið fyrir talsverðum óþægindum.
Hafðu samband við okkur ef viðkvæmnin er óvenjulega mikil eða viðvarandi.