Implantaaðgerð - sýklalyfjagjöf
Leiðbeiningar eftir implantaaðgerð sem þarfnast sýklalyfjagjöf til forvarnar
Hverju má ég búast við?
⌄

Eðlilegt er að finna fyrir vægum verkjum, eymslum og bólgu fyrstu dagana eftir implantaaðgerð. Smávægilegt blóðbragð í munninum er eðlilegt fyrstu 2 sólarhringi.

Bólga getur aukist fyrstu dagana og nær yfirleitt hámarki á þriðja degi. Einnig eru smávægilegar líkur að fá marblett á andlit eftir aðgerðina.

Einkennin eiga svo að minnka smám saman eftir því sem líður frá aðgerðinni.

Sýklalyf
⌄

Taktu sýklalyfin samkvæmt leiðbeiningum tannlæknis. Reyndu að fylgja skömmtum og tímasetningum eins nákvæmlega og hægt er. Kláraðu skammtinn sem skrifað var upp á - jafnvel þó að þér liði vel.

Sýklalyf hafa áhrif á bakteríuflóru í meltingarvegi. Væg óþægindi í meltingarvegi og niðurgangur eru eðlileg. Við mælum með notkun góðgerla - þau hjálpa til við að viðhalda eðlilegri flóru í meltingarveginum. Við mælum sérstaklega með AB-mjólk og LGG+

Ofnæmi við sýklalyf eru sjaldgæf en þekkt. Ofnæmisviðbragð lýsir sig sem útbrot, vanlíðan, öndunarerfiðleika og mikil óþægindi í meltingarvegi. Skal þá hætta inntöku lyfsins og hafa samband við okkur.

Bráðaofnæmi eru mjög sjaldgæf en geta orðið mjög alvarleg. Ef bólga í vörum, tungu eða hálsi eða öndunarerfiðleikar koma fram skaltu leita tafarlaust eftir bráðri læknisaðstoð.

Verkir og verkjastilling
⌄

Vægir verkir og eymsli fyrstu dagana eru eðlileg. Yfirleitt er verkjastilling með hefðbundnum verkjatöflum nóg. Notaðu verkjatöflur eftir þörfum og fylgdu ráðlögðum skömmtum.

Yfirleitt eru verkir mestir fyrstu 2 dagana og eiga svo að fara minnkandi.

Hafðu samband við okkur ef þú finnur fyrir miklum verkjum sem hefðbundin verkjalyf slá ekki á.

Blæðing
⌄

Lítilsháttar blæðing eða blóðlitað munnvatn fyrstu 2 daga er eðlilegt.

Reyndu að forðast að skola munninn kröftuglega, fikta í sárinu með tungunni og bursta svæðið til að trufla ekki sárið og saumana.

Hafðu samband við okkur ef sárið fer að blæða og blæðingin hættir ekki eftir hálftíma.

Bólga
⌄

Bólga er eðlilegur hluti af gróandanum. Hún nær yfirleitt hámarki 3 dögum eftir aðgerðina og fer svo minnkandi.

Kæling utan á kinn fyrsta sólarhringinn getur hjálpað við að lágmarka bólgu. Gott er að kæla í stuttum lotum, til dæmis 15–20 mínútur í senn, og taka hlé á milli.

Kældu einungis eftir að deyfingin er farin og eðlileg skynjun er komin aftur í húðina. Annars er hætta á að ofkæla.

Hafðu samband við okkur ef bólgan eykst verulega eftir nokkra daga eða henni fylgir hiti og almennur slappleiki.

Munnskol og tannhirða
⌄

Við mælum með því að aðgerðarsvæðið verði ekki burstað fyrstu vikuna eftir aðgerðina. Þess í stað mælum við með notkun munnskols sem inniheldur CHX (klórhexidin) í styrkleika 0.12%-0.20% fyrstu vikuna. Passaðu þig að skola ekki kröftuglega. Best er að taka lítinn sopa og halla höfðinu þannig að skolið baði aðgerðarsvæðið, í sirka eina mínutu. Við mælum með að endurtaka þetta þrisvar á dag.

Eftir fyrstu viku má byrja að bursta aðgerðarsvæðið varlega aftur.

Mataræði
⌄

Rétt næring er mikilvæg fyrir góða bein- og tannholdsgræðslu. Við þurfum að fá prótín og vítamín.

Við mælum með mjúku mataræði fyrstu 3 daga. Góð dæmi um holla næringu fyrstu dagana er til dæmis skyr, boost, súpur en einnig fiskur, grænmetismauk og stappaðar kartöflur. Passið að hafa matinn volgan eða kaldan. Heitur matur og drykkir geta sært tannholdið.

Eftir fyrstu 3 daga má byrja að tyggja eðlilega - en lykilatriði er að hlífa aðgerðarsvæðinu. Matur má ekki nudda og særa tannholdið og græðsluhettu tannplantans.

Við mælum með að tyggja ekki á aðgerðarsvæðinu fyrr en varanlegu tanngervi er komið fyrir í tannplantana - yfirleitt 3 mánuðum eftir implantaaðgerðina.

D-vitamín er mikilvægur þáttur í beingræðslu. Við mælum með inntöku á lýsi eða d-vítamín töflum á meðan að implant er að gróa.

Reykingar og áfengi
⌄

Reykingar og nikótín geta haft neikvæð áhrif á gróanda eftir implantaaðgerð. Við mælum sterklega með að forðast reykingar og nikótín eins lengi og mögulegt er eftir aðgerðina.

Forðastu áfengi fyrstu 3 sólarhringa eftir aðgerðina.

Hreyfing og vinna
⌄

Hlustaðu á líkamann og gefðu þér tíma til að jafna þig.‍

Taktu því rólega fyrsta daginn. Ekki reyna á líkamann fyrstu 2–3 daga, þar sem aukinn blóðþrýstingur getur valdið því að blæðing hefjist aftur.

Flestir geta snúið aftur til vinnu eftir 1–3 daga. Eftir umfangsmeiri skurðaðgerðir getur tannlæknirinn þinn þó ráðlagt þér að taka lengri tíma í hvíld.

Hafðu samband við okkur ef þig vantar vottorð fyrir vinnuveitandann þinn.

Næstu skref
⌄

Græðsla eftir implantaaðgerð tekur yfirleitt 2-4 mánuði. Beinið þitt mun gróa þétt að yfirborði implants. Mikilvægt er að trufla þetta ferli ekki of snemma.

Yfirleitt er saumataka framkvæmd 2-3 vikum eftir implantaaðgerðina. Eftir það er aðgerðarsvæðið látið gróa í friði.

Þegar implant er tilbúið er tekið tölvuskan af því og tanngervi útbúið.

Ekki hika við að hafa samband ef þú ert óviss um eitthvað á meðan gróanda stendur.

Hvenær á ég að hafa samband?
⌄

Hafðu samband við okkur ef:

  • verkir aukast í stað þess að minnka eftir nokkra daga
  • óvenjuleg útbrot eða önnur möguleg einkenni sýklalyfjaofnæmis koma fram
  • ef þú getur ekki tekið sýklalyf samkvæmt fyrirmælum vegna ógleði eða uppkasta
  • mikil bólga kemur fram eða bólga heldur áfram að aukast eftir nokkra daga
  • sárið byrjar að blæða og blæðing stöðvast ekki eftir hálftíma
  • þú færð hita eða finnur fyrir almennum slappleika
  • gröftur, vond lykt eða óvenjulegt bragð kemur frá aðgerðarsvæðinu
  • implant eða hettan virðist hreyfast
  • eitthvað annað veldur þér áhyggjum