Eðlilegt er að finna fyrir vægum verkjum, eymslum og bólgu fyrstu dagana eftir implantaaðgerð. Smávægilegt blóðbragð í munninum er eðlilegt fyrstu 2 sólarhringi.
Bólga getur aukist fyrstu dagana og nær yfirleitt hámarki á þriðja degi. Einnig eru smávægilegar líkur að fá marblett á andlit eftir aðgerðina.
Einkennin eiga svo að minnka smám saman eftir því sem líður frá aðgerðinni.
Vægir verkir og eymsli fyrstu dagana eru eðlileg. Yfirleitt er verkjastilling með hefðbundnum verkjatöflum nóg. Notaðu verkjatöflur eftir þörfum og fylgdu ráðlögðum skömmtum.
Yfirleitt eru verkir mestir fyrstu 2 dagana og eiga svo að fara minnkandi.
Hafðu samband við okkur ef þú finnur fyrir miklum verkjum sem hefðbundin verkjalyf slá ekki á.
Lítilsháttar blæðing eða blóðlitað munnvatn fyrstu 2 daga er eðlilegt.
Reyndu að forðast að skola munninn kröftuglega, fikta í sárinu með tungunni og bursta svæðið til að trufla ekki sárið og saumana.
Hafðu samband við okkur ef sárið fer að blæða og blæðingin hættir ekki eftir hálftíma.
Bólga er eðlilegur hluti af gróandanum. Hún nær yfirleitt hámarki 3 dögum eftir aðgerðina og fer svo minnkandi.
Kæling utan á kinn fyrsta sólarhringinn getur hjálpað við að lágmarka bólgu. Gott er að kæla í stuttum lotum, til dæmis 15–20 mínútur í senn, og taka hlé á milli.
Kældu einungis eftir að deyfingin er farin og eðlileg skynjun er komin aftur í húðina. Annars er hætta á að ofkæla.
Hafðu samband við okkur ef bólgan eykst verulega eftir nokkra daga eða henni fylgir hiti og almennur slappleiki.
Mikilvægt er að trufla ekki gróandann með tannburstun.
Við mælum með því að aðgerðarsvæðið verði ekki burstað fyrstu vikuna eftir aðgerðina. Þess í stað mælum við með notkun munnskols sem inniheldur CHX (klórhexidin) í styrkleika 0.12%-0.20% fyrstu vikuna. Passaðu þig að skola ekki kröftuglega. Best er að taka lítinn sopa og halla höfðinu þannig að skolið baði aðgerðarsvæðið, og halda því í sirka eina mínutu. Þetta má gera þrisvar á dag.
Eftir fyrstu viku má byrja að bursta aðgerðarsvæðið varlega aftur.
Rétt næring er mikilvæg fyrir góða bein- og tannholdsgræðslu. Við þurfum að fá prótín og vítamín.
Við mælum með mjúku mataræði fyrstu 3 daga. Góð dæmi um holla næringu fyrstu dagana er til dæmis skyr, boost, súpur en einnig fiskur, grænmetismauk og stappaðar kartöflur. Passið að hafa matinn volgan eða kaldan. Heitur matur og drykkir geta sært tannholdið.
Eftir fyrstu 3 daga má byrja að tyggja eðlilega - en lykilatriði er að hlífa aðgerðarsvæðinu. Matur má ekki nudda og særa tannholdið og græðsluhettu tannplantans.
Við mælum með að tyggja ekki á aðgerðarsvæðinu fyrr en varanlegu tanngervi er komið fyrir í tannplantana - yfirleitt 3 mánuðum eftir implantaaðgerðina.
D-vitamín er mikilvægur þáttur í beingræðslu. Við mælum með inntöku á lýsi eða d-vítamín töflum á meðan að implant er að gróa.
Reykingar og nikótín geta haft neikvæð áhrif á gróanda eftir implantaaðgerð. Við mælum sterklega með að forðast reykingar og nikótín eins lengi og mögulegt er eftir aðgerðina.
Forðastu áfengi fyrstu 3 sólarhringa eftir aðgerðina.
Taktu því rólega eftir aðgerðina.
Flestir geta sinnt léttri vinnu daginn eftir, en það fer eftir því hvernig þér líður.
Forðastu líkamlega áreynslu, að lyfta þungum hlutum og beygja þig niður fyrstu dagana - slíkt getur valdið blæðingu.
Græðsla eftir implantaaðgerð tekur yfirleitt 2-4 mánuði. Beinið þitt mun gróa þétt að yfirborði implants. Mikilvægt er að trufla þetta ferli ekki of snemma.
Yfirleitt er saumataka framkvæmd 2-3 vikum eftir implantaaðgerðina. Eftir það er aðgerðarsvæðið látið gróa í friði.
Þegar implant er tilbúið er tekið tölvuskan af því og tanngervi útbúið.
Ekki hika við að hafa samband ef þú ert óviss um eitthvað á meðan gróanda stendur.
Hafðu samband við okkur ef: