Ekki tyggja með bráðabirgðabrúnni fyrstu 2½ mánuðina, nema við gefum þér önnur fyrirmæli. Veldu fljótandi eða maukaðan mat sem þarf ekki að tyggja. Við metum í eftirliti hvenær óhætt er að byrja að tyggja.
Gott er að leysa út ávísuð lyf fyrir aðgerðina og hafa mjúkan eða maukaðan mat tilbúinn heima. Eftir aðgerðina er best að fara beint heim að hvíla sig.
Við mælum yfirleitt með að skipuleggja far heim. Best er að einhver sæki þig og aki þér heim. Það má eiga von á því að vera þreyttur eftir aðgerðina.
Ef þú þiggur róandi lyf hjá okkur mátt þú ekki keyra í að minnsta kosti 24 klukkustundir eftir lyfjagjöfina. Bíddu lengur ef þú finnur enn fyrir sljóleika eða skertum viðbrögðum.
Fylgdu þeim fyrirmælum sem þú færð frá okkur um mat, drykk og lyf fyrir aðgerðina.
Aðgerðin tekur yfirleitt um 1-3 klukkustundir, og fer tímalengd eftir umfangi meðferðarinnar.
Að aðgerðinni lokinni er útbúin stafrænt líkan af þér og staðsetningu tannplanta, og bráðabirgðalausn útbúin eftir því. Stefnt er alltaf að koma fyrir fastri bráðabirgðabrú samdægurs, eða næsta dag ef næst ekki að gera það samdægurs.
Stundum næst ekki nægilega góður stöðugleiki á tannplöntum. Það gæti komið fyrir vegna þess að kjálkabeinið er ekki nægilega þétt eða orðið rýrt. Ef breyta þarf áætluninni förum við yfir næstu skref með þér.
Eymsli, bólga, þreyta og lítilsháttar blóðlitað munnvatn eru algeng fyrstu dagana eftir aðgerðina. Sýnilegir marblettir geta einnig komið fram.
Bólga, verkir og almenn vanlíðan geta aukist fyrstu tvo til þrjá daga, og eiga svo að hjaðna smám saman.
Brúin getur fundist fyrirferðarmikil til að byrja með. Það getur tekið tíma að venjast nýju tönnunum. Eðlilegt er að eiga í erfiðleikum með framburð til að byrja með. Algengt er einnig að þurfa að læra að brosa upp á nýtt.
Brúin á að haldast þétt að tannplöntum á meðan á græðslutímanum stendur. Ef þér finnst brúin vera á hreyfingu eða vera brotin skaltu heyra í okkur tafarlaust.
Fyrstu 2½ mánuðina á maturinn að vera fljótandi eða maukaður. Góð regla er að borða einungis fljótandi mat eða mat sem hægt er að stappa með gaffli á auðveldan máta. Þetta á við þótt þér líði vel og brúin virðist traust.
Mikilvægt er að fá góða næringu og vítamín á græðslutímanum. Eftirfarandi fæðu mælum við með:
Einnig er mikilvægt að huga að því að fá D-vítamín og kalk. Við mælum sérstaklega með lýsi.
Forðastu mat sem þarf að bíta í sundur og tyggja - svo sem brauð með skorpu, kjöt, hrátt grænmeti, hnetur, harðfisk og brjóstsykur og karamellur.
Reyndu að fá næga orku, prótín og vökva yfir daginn.
Taktu sýklalyf og verkjalyf samkvæmt leiðbeiningum á lyfseðlum. Ekki breyta skömmtum eða lengd meðferðar án samráðs við okkur.
Sýklalyf gegna mikilvægu hlutverki til þess að fyrirbyggja sýkingar í munni eftir stórar implantaaðgerðir. Mikilvægt er að taka þeim samkvæmt fyrirmælum frá okkur. Kláraðu skammtinn sem skrifað var upp á - jafnvel þó að þér liði vel.
Sýklalyf geta haft áhrif á bakteríuflóru í meltingarvegi. Væg óþægindi í meltingarvegi og niðurgangur geta komið fram sem aukaverkun sýklalyfja. Við mælum með notkun góðgerla - þau hjálpa til við að viðhalda eðlilegri flóru í meltingarveginum. Við mælum sérstaklega með AB-mjólk og LGG+
Parasetamól og Ibufen virka vel sem verkjastillandi lyf eftir implantaaðgerðir. Fylgdu leiðbeiningum á lyfseðlum.
Ef þér var ávísað Parkódín Forte skaltu hafa í huga að það inniheldur bæði parasetamól og kódein. Ekki bæta Paratabs eða öðrum lyfjum sem innihalda parasetamól við. Parkódín forte getur valdið syfju. Ekki neyta áfengis með þessum lyfjum.
Yfirleitt er ekki þörf á sterkri verkjastillingu með Parkódín Forte eftir fyrstu 2-3 daga. Ibufen og parasetamól virka vel til verkjastillingar gegn smávægilegum eymslum og bólgu.
Ofnæmi við sýklalyf eru sjaldgæf en þekkt. Ofnæmisviðbragð lýsir sig sem útbrot, vanlíðan, öndunarerfiðleika og mikil óþægindi í meltingarvegi. Skal þá hætta inntöku lyfsins og hafa samband við okkur.
Bráðaofnæmi eru mjög sjaldgæf en geta orðið mjög alvarleg. Ef bólga í vörum, tungu eða hálsi eða öndunarerfiðleikar koma fram skaltu leita tafarlaust eftir bráðri læknisaðstoð.
Ekki skola munninn fyrsta sólarhringinn og forðastu að koma við tannholdið og sauma.
Daginn eftir aðgerðina átt þú að byrja að nota bakteríudrepandi munnskol sem þú færð hjá okkur. Taktu lítinn sopa (5-10ml) og láttu það baða aðgerðarsvæðið varlega í eina mínútu. Ekki skola af krafti. Gerðu þetta þrisvar á dag fyrstu 4-5 daga.
Ekki bursta sárin eða saumana fyrstu vikuna. Burstaðu þínar tennur eins og venjulega. Eftir fyrstu viku má byrja að bursta tannholdið og brúna varlega með mjúkum tannbursta. Ekki nota harða eða medium tannbursta - þeir geta sært holdið.
Við sýnum þér hvenær og hvernig má byrja að þrífa undir brúnni. Ekki nota Waterpik, superfloss og millitannabursta fyrr en við höfum leiðbeint þér að gera það.
Lítilsháttar blæðing og blóðbragð í munni er eðlilegt fyrstu dagana.
Hafðu samband ef blæðingin er meiriháttar eða stöðvast ekki.
Bólga er eðlileg eftir implantaaðgerð. Hún verður oft mest áberandi dagana 2–3 og fer síðan smám saman minnkandi. Örsjaldan myndast sýnilegur marblettur á andliti eftir nokkra daga, og er það líka eðlilegt.
Kæling utan á kinn getur dregið úr óþægindum og bólgu fyrsta daginn. Hafðu klút milli húðar og kælipoka og kældu í stuttum lotum með hléum á milli. Ekki setja klaka beint á húðina.
Við mælum með hvíld heima kvöldið eftir aðgerðina. Gerðu ráð fyrir meiri þreytu og eymslum næstu tvo til þrjá daga.
Við mælum með að reyna ekki á líkamann fyrstu 3 daga eftir aðgerðina. Gott er að hafa svigrúm til að taka því rólega. Það er hægt að vinna létta skrifstofuvinnu - en ef starfið þitt er líkamlega krefjandi skaltu taka þér 2-3 daga frí.
Slepptu líkamsrækt, hlaupum, þungum lyftingum og annarri mikilli áreynslu fyrstu vikuna. Byrjaðu síðan rólega aftur.
Forðastu reykingar á græðslutímanum. Nikótín hægir á græðslu og getur orsakað vandamál í ferlinu. Láttu okkur vita ef þú reykir eða notar nikótínvörur svo við getum rætt möguleikana.
Yfirleitt er næsta skref eftirlit og saumataka, 2-3 vikum eftir aðgerðina. Þá skoðum við gróandann, fjarlægjum sauma og metum hvort að þurfi að gera einhverjar ráðstafanir.
Bráðabirgðabrúin er notuð á meðan implöntin gróa og tannholdið jafnar sig. Þegar aðstæður leyfa hefst gerð endanlegu brúarinnar. Tímasetningin fer eftir gróanda og umfang meðferðarinnar. Yfirleitt er reiknað með 3-7 mánaða gróanda áður en hægt að framleiða endanlegu brúna.
Bráðabirgðabrúin getur verið í notkun lengur en tímabilið sem þú þarft að forðast tyggingu. Við metum hvenær óhætt er að byrja að tyggja og hvenær aðstæður eru tilbúnar fyrir endanlegu brúna.
Fastar tennur á implöntum er almennt heiti yfir lausnir þar sem tannkrónur eða brýr eru festar á implönt.
Í dag eru til margar mismunandi lausnir við tannleysi. Hægt er að nota frá 4 upp í 8 implönt til þess að bera föst tanngervi. Stundum er brúin heil, stundum eru notaðar 3-4 minni brýr. Stundum er verið að byggja upp tapað tannholdið (svokallaðar FP3 lausnir), stundum er einungis verið að byggja upp tennur (svokallaðar FP1 lausnir).
All-on-4® er skráð vörumerki Nobel Biocare fyrir ákveðið meðferðarhugtak, þar sem heil föst brú er studd af fjórum Nobel Biocare implöntum. All-on-4 er því ein tiltekin lausn við tannleysi, af mörgum mögulegum.
Sambærilegu markmiði má ná með öðrum implantakerfum og breytilegum fjölda implanta. Við notum Straumann implönt og aukahluti.
Hjá okkur er meðferðin skipulögð út frá þínum aðstæðum. Fjöldi og staðsetning implanta ráðast meðal annars af beinmagni og markmiðum meðferðarinnar. Til þess að byggja upp stærri tannboga með fleiri tönnum þarf oft að nota fleiri implönt.
Hafðu samband við okkur ef:
Ef brúin losnar eða brotnar skaltu hætta að bíta með henni og hafa strax samband. Ekki reyna að laga eða líma hana sjálf/ur.
Við öndunarerfiðleika eða bólgu undir tungu eða í hálsi skaltu leita tafarlaust eftir bráðri læknisaðstoð.
Bráðaofnæmi við sýklalyfjum eru mjög sjaldgæf en geta orðið mjög alvarleg. Ef bólga í vörum, tungu eða hálsi eða öndunarerfiðleikar koma fram skaltu leita tafarlaust eftir bráðri læknisaðstoð.